ivarg.wordpress.com

Þá sjaldan ég hef eitthvað að segja þá er líklegra að finna það á http://ivarg.wordpress.com heldur en hér

Bíddu, var kjötið ekki íslenskt?

Ég man ekki betur en að Lyst hafi hreykt sér mikið að því að allt þeirra nautakjöt væri íslensk framleiðsla? Ég man ekki betur en að í denn hafi meira að segja bakkasvunturnar þeirra verið áprentaðar með þeim áróðri.  Skv. fréttinni er þarna um að ræða kjöt ásamt öðru, og kjötið hlýtur nú að vera dýrasti parturinn af þessu.

 


mbl.is McDonald's hættir - Metro tekur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmm...

Spurning hvort ekki sé rétt að slökkva á bloggteningamöguleikanum á þessum degi :)
mbl.is Katona breytir íslenska þjóðsöngnum!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmm.

Spurning hvort ekki sé gáfulegra að slökkva á bloggtengingum við fréttir á þessum degi :)
mbl.is Selja húsbúnað úr gömlu bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þetta er fréttnæmt hversvegna?

...
mbl.is Kaloríukjarnorkusprengja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta kemur mér ekki á óvart

Hafi maður áhuga á að hanga í 6 klst. eða lengur á ritstýrðu upplýsinganeti kínverja get ég vel gúdderað að um sé að ræða einhvern krankleika.
mbl.is Þjáistu af netfíkn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...er liturinn á kirkjunni tilviljun?

Eru þetta ekki Vodafone litirnir? :)
mbl.is Segja upp viðskiptum við Símann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brilliant

Brilliant.. 

"...bílstjórarnir ósáttir við að tíu lögregluþjónar gangi um og sekti þá fyrir brot á lögum..."

En ekki hvað? Er það ekki hlutverk lögreglu að framfylgja lögum? Hversvegna virðist sem flestum finnist bara í lagi að þessi blessuðu menn brjóti lög, ef þeir eru bara nógu pirraðir, og nógu margir saman?

Ég er alltént orðinn svolítið þreyttur á að bíða eftir að sjá að einhverjum þessarra manna sé refsað skv. bókstaf laganna fyrir að taka út gremju sína á mér og öðrum vegfarendum dag eftir dag.

Eða er í lagi að taka lögin í eigin hendur ef maður er bara orðinn nógu pirraður? Á ég þá ekki heimt á sömu undanþágu ef ég kýs að hefna mín á atvinnubílstjórum sem hafa valdið mér miklum töfum og leiðindum undanfarna daga? Ég er jú einusinni orðinn þreyttur á aðgerðaleysi stjórnvalda.


mbl.is Mikill hiti í bílstjórum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látum ekki undan svona aðgerðum

Datt í hug að leita skilgreiningar á hugtakinu "hryðjuverk". Er ekki með íslenska orðabók við höndina þannig að ég leyfi mér að vitna í enskar orðskýringar af wiktionary.org í staðinn.

 terrorism (uncountable)

    2. Violence against civilians to achieve military or political objectives.

 

Fáum svo í kjölfarið skilgreininguna á ofbeldi (e. Violence) 

violence (uncountable)

    2. Action intended to cause destruction, pain, or suffering.

 

Ég held því að í víðustu skilgreiningu sé vel hægt að túlka aðgerðir atvinnubílstjóra sem hryðjuverk, alltént skv. skilgreiningunum að ofan.

Hvað svosum þessum orðaleik líður þá vona ég að stjórnmálamenn sýni samstöðu um það að láta ekki undan þessum kröfum, því ekki viljum við að þeir gefi fordæmi og sýni að hægt sé að krefja fram breytingar með því að taka lögin í eigin hendur og níðast á rétti samborgara sinna.

Væri annars ekki gaman ef við einkabílaeigendur tækjum höndum saman næstu daga og lokuðu inni flutningabíla?

 


mbl.is Áframhaldandi „umferðarskærur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, það er gott að búa í Kópavogi

 
mbl.is Dagur: Óvanur því að samstarfsmenn segi ekki satt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband